Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett
Ný kammerópera fyrir rödd og selló eftir Önnu Halldórsdóttur við ljóðabók Elísabetu Jökuls


„Við förum á ball
og ég er að hugsa um
að bera upp bónorð
þegar ég man eftir
geðhvörfunum mínum
svo það verður ekkert úr því…“
Innri barátta konu speglast í ofbeldisfullu ástarsambandi frá upphafi til enda. Sagan er hádramatísk og hversdagsleg í senn en geðhvörf konunnar lita frásögnina og úr verður rússibanareið á milli alsælu og dýpsta þunglyndis. Draumheimur hennar ræðst ítrekað á raunveruleikann sem fær hana til að velta því fyrir sér hvað það er sem geri hana að „alvöru konu” og hvar lykillinn að hamingjunni leynist.
En hvort sem konan er stödd á toppnum eða botninum er kímnin aldrei langt undan - á þann hátt sem Elísabetu Jökuls einni er lagið.
Heimili konunnar í Vesturbænum, sem hingað til hefur verið hennar örugga athvarf, breytist hægt og bítandi í stað þar sem lífi hennar er ógnað og hún þarf að taka erfiðar ákvarðanir til að bjarga sjálfri sér.
„...ég skil ekki af hverju ég gekk ekki út
en kannski vissi ég ekki
hvar dyrnar voru “
Ljóðabókin Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett, vakti sterk viðbrögð þegar hún kom út árið 2015. Þessi ljóð-saga er byggð á ævi Elísabetar líkt og margar af hennar sögum sem einnig hafa ratað á leiksvið hér á landi. Þetta er fyrsta óperan sem samin er við texta Elísabetar - en örugglega ekki sú síðasta.
Verkið var flutt í vinnslu sem tónleikauppfærsla í Mengi á Myrkum músíkdögum og í Norðurljósasal Hörpu á Óperudögum í Reykjavík árið 2023, og er nú flutt sem fullunnið óperuverk í Tjarnarbíói.
Lengd verksins: 60 mínútur


TJARNARBÍÓ
19.september 2026
Laugardagur kl.20
Frumsýning
27.september 2026
Sunnudagur kl.20
2.Sýning
8.október 2026
Fimmtudagur kl.20
3.Sýning
LISTRÆNT TEYMI
Bergdís Júlía Jóhannsdóttir
LEIKSTJÓRI & DRAMATÚRGUR
Bergdís er leikstjóri verksins. Hún útskrifaðist með BA gráðu í leiklist 2013 og stofnfélagi sviðslistahópins Spindrift. Bergdís hefur frá útskrift starfað sem sjálfstætt starfandi leikkona, höfundur og leikstjóri, og á undanförnum árum leikstýrt allnokkrum óperum og tónleikhússverkum. Bergdís er annar höfunda páskaleikverks Útvarpsleikhússins „Sorrí hvað ég svara seint” sem frumflutt var á síðasta ári og hún stundar nú meistaranám í sviðslistum við Listaháskóla Íslands.




Anna Halldórsdóttir
TÓNLISTARSTJÓRI & DRAMATÚRGUR
Anna hefur starfað á breiðum vettvangi tónlistar, hljóðvinnslu og sviðslista, bæði á Íslandi og erlendis. Hún lærði tónlist á Akranesi og í Reykjavík og tók ung þátt í fjölbreyttu tónlistarstarfi. Hún hefur gefið út þrjár sólóplötur með eigin tónlist og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir sína fyrstu plötu.
Anna lærði upptökutækni erlendis og hefur síðan fléttað saman tónsmíðum, upptökum og hljóðvinnslu í fjölbreyttum verkefnum. Hún bjó og starfaði í New York í fimmtán ár og kom þar að fjölda tónlistarverkefna. Hún hefur einnig unnið að heimildarmyndum frá Mongólíu og átt samstarf við tónlistarfólk þaðan.
Eftir heimkomuna til Íslands árið 2017 hefur Anna meðal annars samið tónlist og hljóðmynd fyrir leiksýningar í Þjóðleikhúsinu, Ég heiti Guðrún og Þitt eigið leikhús II. Hún hefur einnig unnið með alþjóðlega leikfélaginu Reykjavík Ensemble að sýningunum Opening Ceremony og Polishing Iceland, þar sem hún samdi tónlist og hljóðmynd.




Juliette Louste
LJÓSAHÖNNUÐUR
Juliette er lýsingarhönnuður verksins. Hún hefur getið sér gott orð hér á landi allt í senn sem dansari, fyrir dans- og hreyfihönnun og fyrir lýsingarhönnun í atvinnuleikhúsum höfuðborgarsvæðisins. Hún var tilnefnd til Grímuverðlauna árið 2023 bæði fyrir hreyfi- og ljósahönnun í sýningunni „Ég lifi enn” í Tjarnarbíói.
Hún hefur starfað hjá ViVa Holding frá árinu 2023, sem gerði henni kleift að skapa sýning FLÆKT árið 2025, þar sem hún var bæði listrænn stjórnandi og dansari.
Sara Hjördís Blöndal
BÚNINGA- OG LEIKMYNDAHÖNNUÐUR
Sara er leikmynda og búningahönnuður sýningarinnar. Hún hefur unnið að fjölmörgum sýningum í leikhúsi og söfnum. Sara lærði leikhúshönnun við Wimbledon college of Art og er með meistaragráðu frá Listaháskóla Íslands.
Tinna Þorvalds Önnudóttir
MEZZO-SÓPRAN & DRAMATÚRGUR
Tinna er hvoru tveggja leikkona og klassísk söngkona. Hún lauk BA gráðu í leiklist 2010 og burtfararprófi í söng vorið 2023. Tinna er einn af listrænum stjórnendum Spindrift. Hún hefur unnið til verðlauna sem söngvari, haldið einsöngstónleika og tekið þátt í óperu uppfærslum, tónleikaröðum og masterklössum. Komandi úr leikhúsinu yfir í heim klassískrar tónlistar gefur Tinnu afar sérstakt sjónarhorn. Það hefur áhrif á nálgun hennar á tónlistarflutning hvort sem um er að ræða tónleika eða óperuflutning, og hún hefur mikinn áhuga á að rannsaka möguleika óperunnar og klassískrar tónlistar almennt sem frásagnarmiðils í nútímasamfélagi.
Júlía Mogensen
SELLÓLEIKARI
Júlía Mogensen er klassískt menntaður sellóleikari sem hefur starfað sem flytjandi í tvo áratugi. Hún hefur átt í samstarfi, leikið og spunnið með breiðum hópi listamanna, bæði á sviði og í upptökum, fyrir kvikmyndir og hljómplötur. Hún hefur komið fram á fjölmörgum tónlistar- og listahátíðum hérlendis, meðal annars Myrkum músíkdögum, Listahátíð í Reykjavík, Nordic Music Days og Iceland Airwaves, og leikur reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Undanfarin ár hefur hún í auknum mæli beint sjónum að samtíma- og tilraunakenndri tónlist, spuna og þverfaglegum verkefnum, þar sem hún hefur einnig fengist við tónsmíðar og þróun nýrra verka í samstarfi við aðra listamenn.






Elísabet Kristín Jökulsdóttir
HÖFUNDUR BÓKAR
Elísabet hefur sent frá sér fjölda bóka: ljóð, sögur og skáldsögur. Hún er einnig þekkt fyrir gjörninga sína og hefur skrifað fjölda leikrita sem sviðsett hafa verið hér á landi og erlendis.
Ljóðabók hennar Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett hlaut Fjöruverðlaunin 2015 og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Nanna Gunnarsdóttir & Spindrift
FRAMLEIÐSLA
Louis Crevier
HÖNNUN Á PLAKATI
Sóley Þorvaldsdóttir
LJÓSMYND Á PLAKATI
Kristín Edda Gylfadóttir
LJÓSMYNDIR AF TEYMI
SÉRSTAKAR ÞAKKIR
Anna Atladóttir
Anna Kristmundsdóttir
Anton Helgi Jónsson
Ari Hróðmarsson
Arnar Hauksson
Arndis Inga Magnusdottir
Ágústa Skúladóttir
Árni Pétur Reynisson
Ása Helga Ragnarsdóttir
Ásta Ragnheiður Júlíusdóttir
Baldvin Einarsson
Barnaby Walters
Bergljót Arnalds
Birna Pétursdóttir
Bjork Nielsdottir
Björg Ólínudóttir
Björn Thorarensen
Daníel B. Björgvinsson
Dóra Wild
Einar Örn
Elfur Sunna Baldursdóttir
Elín Gunnlaugsdóttir
Elka Halldórsdóttir
Erla Vogler
Eva Bjarnadóttir
Eva H. Önnudóttir
Eva Ingvadottir
Fanney Einarsdóttir
Fríða Bonnie Andersen
Gísli Þór Sigurþórsson
Guðbjörg Árnadóttir
Guðrún Álfheiður Thorarensen
Guðrún Björk Jónsdóttir
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
Gunna Lára Pálmadóttir
Gunnlaugur Bjarnason
Halldóra Þöll Þorsteins
Hallveig Rúnarsdóttir
Heiða Árnadóttir
Helga Óskarsdóttir
Helga Pálína Brynjólfsdóttir
Helgi Þór Jónsson
Hlín Leifsdóttir
Hólmfríður Jónsdóttir
Hólmfríður María Bjarnardóttir
Hrafnhildur Theodórsdóttir
Hróðmar I. Sigurbjörnsson
Hrönn Þráinsdóttir
Hugrún Margrét
Hædý Björnsdóttir
Ingi Rafn Sigurðsson
Ingunn Ósk Árnadóttir
Íris Ellenberger
Jóhann Sigurður Þorsteinsson
Jóhanna Jónasdóttir
Jón Páll Helgason
Jóna Guðrún Jónsdóttir
Jónas Sen
Jósa Goodlife
Kristin Osk Ingvarsdottir
Kristín Bjarnadóttir
Kristín Edda Gylfadóttir
Kristín Sveinsdóttir
Kristín Valsdóttir
Lilja Björk Kristinsdóttir
Margrét Arnardóttir
Margrét Blöndal
Margrét Hrafnsdóttir
María Guðmundsdóttir
María Jónsdóttir
María Konráðsdóttir
María Pálsdóttir
Nanna Gunnars
Nýi Tónlistarskólinn
Oliver Kentish
Pétur Magnússon
Pétur Oddbergur Heimisson
Rán Tryggvadóttir
Rebekka Magnúsdóttir
Sigríður Ása Júlíusdóttir
Sigrún Ólafsdóttir
Sigrún Steinsdóttir
Sigurbjörg Magnúsdóttir
Sigurlína Pech
Silja Aðalsteinsdóttir
Sirrý Sif Sigurlaugardóttir
Soffia Audur Birigsdóttir
Soffía Thorarensen
Sólrún Freyja Sen
Sólveig Eva Magnúsdóttir
Steve Kipling
Teja Goli
Tomas Ponzi
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Urður Norðdahl
Valdís Arnardóttir
Þorvaldur Þorvaldsson
Þóranna Dögg Björnsdóttir
Þórey Sigþórsdóttir
Þórhallur Jónssoni
Þórunn Björnsdóttir
Þórunn Guðmundsdóttir
STYRKIR
Tónskáldasjóður RÚV og STEF
Tónskáldasjóður Bylgjan and Stöð 2
Menningarsjóður FÍH Félag íslenskra hljómlistarmanna
Samfélagssjóður Landsbankinn
Launasjóður tónlistarflytjenda at RANNÍS
